Sölvi vettlingar eru háir og haldast vel á höndum barnsins. Þeir henta vel bæði undir og yfir útiföt. Hátt stroffið gerir það að verkum að þeir liggja þétt að handleggnum en gefa samt eftir ef þeir eru settir utan yfir föt. Minnsta stærðin er þumallaus og eru vettlingarnir alveg frábærir í vagninn.
Stærðir: 3-12 mán / 1-2, 2-3 / 3-4, 4-5 ára
Garn: Mitu frá Rauma (fæst hér), Drops Merino Extra Fine, Drops Karisma, Kelbourne Woolens Scout eða annað garn með sömu prjónfestu.
Magn af garni: 50 / 50, 50 / 100, 100gr
Prjónfesta: 22l/10cm
Það sem þarf:
Hönnuður: Tinna Sigurðardóttir
Almennir skilmálar
Allar uppskriftir á vef Prjónabankans (PB Knit ehf) eru á ábyrgð höfunda og ber Prjónabankinn (PB Knit ehf) enga ábyrgð á innihaldi uppskrifta. Komi til grunur um ritstuld eða aðrar athugasemdir við uppskriftir skal beina öllu slíku beint til höfundar uppskriftar.
Afhending vöru
Uppskriftir eru sendar á netfang kaupanda á stafrænu (PDF) formi að lokinni greiðslu. Einungis er hægt að opna hverja niðurhalsslóð 2 sinnum. Prentaðar uppskriftir eru sendar á uppgefið heimilisfang kaupanda.
Skilaréttur
Ekki er hægt að skila uppskriftum sem keyptar eru í gegnum vefsíðuna.
Verð
Verð á vörum í vefverslun getur breyst án fyrirvara. PB Knit ehf. áskilur sér rétt til að fjarlægja vörur úr vefverslun án fyrirvara hætti vara í sölu.
PB Knit ehf
Kt: 480615-2710
VSK númer: 139026